top of page

Skyndilausnir!

Einhvernvegin þá sækjumst við flest öll í eitthvað sem virkar einn tveir og tíu!

# Megrunarpillur

# "Í kjólinn fyrir jólin!"

# Í form á 4 vikum

# Tæki sem grennir.

# Melónukúrinn

Skyndilausnir virka ekki! ... nema kannski í takmarkaðan tíma.

Er það virkilega það sem við viljum?

Veljum varanlegar lausnir og veljum það sem við viljum gera að lífsstíl! Veldu það sem þú ert virkilega tilbúin/n að gera... alltaf!

Varanlegur árangur fæst ekki útí búð.

Hættum að sækja í það að vilja árangurinn strax... verum þolinmóð!

Það tekur okkur 4 vikur að sjá og finna árangurinn. Það tekur vini þína 8 vikur að sjá breytingarnar. Það tekur 12 vikur fyrir "heiminn" að taka eftir! Gefðu þessu tíma!

Við sigrum ekki Everest á balletskóm. Við þurfum að safna að okkur búnaði fyrir fjallgönguna áður en við hefjumst svo handa við að klífa sjálft fjallið. Þetta er ferðalag! Við eigum að njóta þess!


Nýjasti pistillinn
Nýlegir pistlar
Skjalasafn
bottom of page